Tóta segir sögu
Myndasíða
24.09.2006 20:52:39 / totasigur

Á hjóli í sól og sumri

Já Hulda mín - þú getur bara haldið áfram að öfunda mig út af veðrinu! Hjólaði niður í bæ og snöflaði bara heilan helling ;) Flatmagaði í Rosenborghave í sólinni og er eldrauð á bringunni - 24. september athugið!!!

Olga og Kenni eru búin að vera í heimsókn þessa helgina og það er því búið að vera megafjör hérna hjá okkur. Ég er ekki alltaf alveg inni í planinu því að þau gista ásamt Gyðu hjá Guðlaugu og Svenna. Mér skildist sem sagt að í dag væri túristadagur og var náttúrlega vöknuð löngu fyrir hádegi og komin niður í bæ um hálfeitt. Þá tékkaði ég nú á þeim og þá voru víst allir sofandi enn nema Guðlaug - þau komu svo niður í bæ klukkan 17:00:!: Það vill nú hins vegar svo vel til að ég er gríðarlega sjálfri mér næg og hafði það bara svaka gott á röltinu og hjólandi um í góða veðrinu. Þegar ég sat svo á Kongens Nytorv að bíða eftir krökkunum rétt fyrir fimm sá ég stelpu að skoða myndasýninguna (svona eins og er á Austurvelli). Hún var alveg ótrúlega lík einni stelpu sem ég þekki og ég glápti hreinlega á hana meðan hún skoðaði myndirnar. Hún var í smá fjarlægð þannig að ég var ekki alveg viss um að þetta væri sú sem ég hélt. Svo þegar krakkarnir komu rak Guðlaug mig náttúrlega til að tékka á þessu og mér leið eins og algjörum laumuperra þegar ég nálgaðist stúlkugreyið. Og haldiði ekki bara að þetta hafi verið hún Tine danska sem ég var með í Göthe Institut í Berlín fyrir fimm árum síðan! Þvílík snilld að hitta hana bara þarna í bænum - er búin að velta oft fyrir mér hvort ég gæti ekki nálgast hana en einhvern veginn aldrei látið neitt verða af því en núna er ég sem sagt komin með símanúmerið hennar og við ætlum að hittast einhvern tíma og rifja upp gamla tíma - sjúklega gaman enda alveg frábær stelpa :D

Nú er kominn tími til að fara í bólið enda Geoteknik. Konstruktioner i jord klukkan 8:00 í fyrramálið.

Hulda Björk skrifaði
Ji en fyndið að hitta þessu stelpu, 5 ár síðan. Heimurinn er lítill!!! En já það er rosalega margt að gerast hérna, er því miður orðin Pólverja hatari og er að hugsa ýmislegt ljótt!! alveg 15 á skrifstofunni hjá mér. Er alveg að fara að öskra KÚRVA KÚRVA!! Mun gera það ef að ipodinn verður batterieslaus!!! :) Hver veit nema ég verði þá Drekinn í fjölskyldunni. :) En annas erum við hressar ég og Bryndís og hinir 5 sem eftir eru :) Söknum þín mús :* Kossar og knús :*
Tóta skrifaði
Ó Hulda mín! Þetta getur nú ekki verið svo slæmt! Eru ekki Pawel, Rob, Prem og félagar þarna til að létta þér lund!?! Annars sakna ég ykkar líka voða mikið :*

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.