Tóta segir sögu
Myndasíða
23.11.2006 19:53:39 / totasigur

Julefrokost 1 og 2

úbbs - ég sem ætlaði að vera svo súperduglega að blogga. Það er greinilega meira en vika síðan í skrifaði því að það er aftur komið að skadestuen sem byrjar einmitt eftir korter! Tíminn líður bara svo sjúklega hratt - bara mánuður þar til ég kem heim í jólafrí og þá á ég eftir að stúta tveimur, ef ekki þremur, prófum. Er ekki alveg búin að ákveða mig hvort ég skrópa í eitt þeirra - er ekki alveg að fatta enda vantar mig smá undirbúning en blabla - seinni tíma vandamál.

Julefrokost á laugardaginn heppnaðist vel og við vorum öll voða sæt - flestir strákarnir í jakkafötum og með bindi eða slaufu. Við stelpurnar vorum líka voða fínar og Luxi var meira að segja í rosaflottum indverskum fötum - nóg af gulli þar á bæ! Maturinn var náttúrlega mjög góður og flatkökurnar og hangikjötið hvarf ofan í Danina - success þar :haha:

Svo er bara næsti Julefrokost næsta laugardag. Þá mæta Íslendingarnir úr DTU í hús Jóns Sigurðssonar og detta í það :D Þið gerið ykkur kannski grein fyrir því núna af hverju ég er að pæla í að sleppa einu prófinu - svo mikið að gera í djamminu maður :haha:

Síðast liðinn mánudag hitti ég pilt sem ég hefði ekki átt að hitta. Finnur Marino vélaverkfræðigaur sem var að vinna með mér fyrir austan í sumar kom í heimsókn til Gunna og ég hitti hann í kantínunni í hádeginu. Ég náttúrlega fór að spyrja hann spjörunum úr um álverið og lífið á Austurlandi. Hefði ekki átt að gera það - sakna þess svo sjúklega að ég fór bara miður mín úr mat :cry: Annars er Finnur fínn sko :haha:

Ó well - Skadestuen og Majken bíða mín í eldhúsinu!

Guðrún Sveins skrifaði
hei já tíminn líður sko hratt...hefði nú ekkert á móti svona julefrokost ...hlakka til að sjá þig í jólafríinu..við verðum að hittast allar þrjár gömlu og spjalla..kemur ekki annað til greina. Hafðu það gott...þú massar þessi próf!
Tóta skrifaði
Jójó - já við hittumst sko alveg pottþétt um jólin - jafnvel um klukkan sjö á aðfangadag! Hlakka geðveikt til að fara að koma heim. Kossar...
Baldvin skrifaði
Borðaðu nú yfir þig af dýrindis julefrukost, smörrebröd og allers. Hafðu það gott. Ps. hvað er málið með síðuna hennar Hörpu? Algjört rugl í gangi!
Tóta skrifaði
Hehe - já Harpa er hætt að blogga og einhver annar komin með sömu slóð. Er á dagskrá hjá mér að uppfæra síðuna mína. Þegar sá dagur rennur upp mun Harpa detta út og þá losnar pláss fyrir þig:)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.