Tóta segir sögu
Myndasíða
06.12.2006 22:57:52 / totasigur

Flutt...

Er farin í fýlu út í blog.central og er því flutt á nýja síðu:

totublogg.blogspot.com


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 22:31:34 / totasigur

Myndin er komin...

Gríðarlegir tækniörðugleikar áttu sér stað þegar ég setti inn myndina um daginn - enda ekkert tölvunörd á ferð. Nú geri ég hins vegar ráð fyrir að flestir geti séð gelluna.

Annars bara góð ímyndun hjá þér Kenni!


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 20:17:01 / totasigur

1. desember

Gleðilegan fullveldisdag!

Það kom að því að ég lærði að setja inn myndir - svona var ég töff í sumar.

Njótið.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 19:53:39 / totasigur

Julefrokost 1 og 2

úbbs - ég sem ætlaði að vera svo súperduglega að blogga. Það er greinilega meira en vika síðan í skrifaði því að það er aftur komið að skadestuen sem byrjar einmitt eftir korter! Tíminn líður bara svo sjúklega hratt - bara mánuður þar til ég kem heim í jólafrí og þá á ég eftir að stúta tveimur, ef ekki þremur, prófum. Er ekki alveg búin að ákveða mig hvort ég skrópa í eitt þeirra - er ekki alveg að fatta enda vantar mig smá undirbúning en blabla - seinni tíma vandamál.

Julefrokost á laugardaginn heppnaðist vel og við vorum öll voða sæt - flestir strákarnir í jakkafötum og með bindi eða slaufu. Við stelpurnar vorum líka voða fínar og Luxi var meira að segja í rosaflottum indverskum fötum - nóg af gulli þar á bæ! Maturinn var náttúrlega mjög góður og flatkökurnar og hangikjötið hvarf ofan í Danina - success þar :haha:

Svo er bara næsti Julefrokost næsta laugardag. Þá mæta Íslendingarnir úr DTU í hús Jóns Sigurðssonar og detta í það :D Þið gerið ykkur kannski grein fyrir því núna af hverju ég er að pæla í að sleppa einu prófinu - svo mikið að gera í djamminu maður :haha:

Síðast liðinn mánudag hitti ég pilt sem ég hefði ekki átt að hitta. Finnur Marino vélaverkfræðigaur sem var að vinna með mér fyrir austan í sumar kom í heimsókn til Gunna og ég hitti hann í kantínunni í hádeginu. Ég náttúrlega fór að spyrja hann spjörunum úr um álverið og lífið á Austurlandi. Hefði ekki átt að gera það - sakna þess svo sjúklega að ég fór bara miður mín úr mat :cry: Annars er Finnur fínn sko :haha:

Ó well - Skadestuen og Majken bíða mín í eldhúsinu!


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 21:47:36 / totasigur

It's alive...

Undur og stórmerki. Tótan tekur sig til og bloggar tvisvar í sömu vikunni ;)

Pæling. Danir eru pínu skrítnir stundum finnst mér - eða bara oft samt. Eitt sem ég hef velt dálítið fyrir mér er þegar þeir þýða nöfn á kvikmyndum eða þáttaröðum. Ég held nú að það sé alltaf gert á Íslandi en við notum það mismikið og ég trúi því að Íslendingunum takist betur til við þýðingarnar. Á kanal 4 er til dæmis verið að sýna "Greys hvide verden" en ekki "Grey's Anatomy" eins og það heitir á frummálinu. Mig minnir svo að kanal 5 sýni stundum gamla þættir af "Heksene fra Warren Manor". Ekki skil ég hvernig þeim dettur í hug að þýða "Charmed" á þennan hátt og það sem meira er að Danirnir nota þessi aulalegu dönsku heiti sín. Um daginn var ég til dæmis að segja Majken frá því að von væri á "Romy and Michelle's High School Reunion" í sjónvarpinu en hún vissi ekkert hvaða mynd ég var að tala um. Það var hins vegar allt annað mál þegar ég sagði að "Blondiner har det sjovere" kæmi í sjónvarpinu um kvöldið. Hún var nú alveg til í að sjá þá mynd :haha:

Á morgun verður konfektgerð í eldhúsinu þar til Skadestuen tekur við klukkan 9 :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 19:29:05 / totasigur

Keane, prjónaskapur, lestur og slátur

Fór á bestu tónleika í heimi á föstudaginn! Vorum komin snemma í KB-hallen og fengum hin fínustu sæti beint á móti sviðinu. Einhver hljómsveit sem heitir Long Winters frá Seattle hitaði upp - fyrsta lagið var fínt en svo var þetta komið gott hjá þeim. Það varð svo allt vitlaust þegar Keane steig á svið enda voru þeir alveg æði. Hef sjaldan skemmt mér eins vel á tónleikum og þeir toppuðu jafnvel Cardiganstónleikana sem ég fór á í fyrra og ekki voru þeir lélegir.

Laugardagskvöldið var tekið með mestu rólegheitum og við Luxi bökuðum okkur pítsu og prjónuðum heilan helling. Mér hefur aldeilis tekist að smita hana af prjónaskapnum og hún er þegar búin að prjóna vettlinga og sokka í haust.

Sunnudagurinn fór svo í lestur - ekki skólabókarlestur heldur Arnald Indriðason. Guðlaug lánaði mér Vetrarborgina á föstudaginn og mér fannst það best í stöðunni að drífa bara bókina af - annars hefði ég verið endalaust lengi að smá-lesa hana og þá nær maður engu samhengi. Ég tók svo upp á því að vera óvinsæl í eldhúsinu í gær og sauð mér slátur sem mamma kom með um daginn. Vaknaði því snemma í morgun til að búa mér til hafragraut en sú hugmynd var strax drepin þegar ég sá grænan orm ofan í haframjölinu mínu - oooooojjjjjjjj. Það var því bara slátur og mjólkurglas í morgunmat. Er búin að fá leyfi hjá Majken vinkonu að nappa frá henni haframjöli í fyrramálið - það verður því vonandi hátíð hjá mér á morgun. Mmmm... hafragrautur og slátur :haha:

Yfir og út...


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 18:46:20 / totasigur

Gleðilegan J-dag

Veturinn kom með gríðarlegri geðvonsku þann 1.nóvember. Það var skítakuldi og brjálað rok - alveg ömurlegt. Í dag var hins vegar ótrúlega fallegt veður en hrikalegur kuldi. Ég er því búin að taka fram allar sokkabuxurnar og setja fremst í skúffuna. Ég hef ekki gengið í sokkabuxum síðan ég var lítil en allan síðasta vetur var ég í síðbrók undir buxunum og það mun ég líka gera í vetur - alveg ótrúlegt hvað kuldinn liggur hræðilega á húðinni í þessum raka.

En nú þýðir ekkert væl því að í dag er J-dagur. Þá kemur jólabjórinn út og ekki um annað að ræða en að skella sér í bæinn og tékka á honum - skál :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 22:41:52 / totasigur

Ótrúlega lítið pirruð manneskja á ferð!

Ætlaði eiginlega að hætta að blogga því að ég nenni þessu varla lengur. Þó er þrennt sem mér liggur á hjarta þessa dagana.

1. Hitti hina nýju litlu hafmeyju um síðustu helgi og get hreinlega ekki hætt að hugsa um vesalinginn. Hún er nálægt gömlu hafmeyjunni en samt á stað þar sem enginn sér hana og því kemur enginn að heimsækja hana. Skil svo sem vel í Dönunum að vera ekkert að merkja leiðina að henni því að hún er svo vansköpuð eitthvað að það er bara hrikalegt. Hún er með fýlusvip, tepokabrjóst og í trúðaskóm. Þar að auki er eitthvað sem hangir yfir höfðinu á henni og þegar betur er að gáð kemur í ljós að það er handleggurinn á henni sem hún einhverra hluta vegna teygir út í loftið. Misheppn!

2. Þetta haustið hefur mín uppáhaldssetning verið "Ég hata dýr". Þetta hefur verið þokkalega saklaust hingað til en verð þó að játa að ég þoli ekki kattafíflin sem búa hjá Guðlaugu og Svenna. Maður má ekki rétt opna hurðina til að smeygja sér út þá bíður eitt kvikindið eftir manni bara til að pirra mann. Arrrrrg. Nú er hins vegar komin alvara í málið því að ég fór með Ruth frænku minni og Asker syni hennar í sumarbústað í vikunni - enda haustfrí. Þegar ég svo kom í sveitina fór ég að finna fyrir ofnæmi og var ekki alveg að fatta fyrst fyrir hverju það var. Ég tók þessu nú bara rólega og bjóst við að þetta færi bara - lagðist bara í sófann með ullarteppi yfir mig. Þegar ég svo rankaði við mér hálftíma seinna var nefið stíflað og farið að kurra í lungunum á mér! Þá fattaði ég að frændi minn og konan hans höfðu verið í bústaðnum helgina áður með bölvað hundkvikindið með sér - ég var því með ofnæmi fyrir hundinum sem var ekki einu sinni lengur til staðar. Ég hata dýr!!!

3. Fór í bíó í kvöld með Gyðu. Það var svo sem ekkert mikið í boði að sjá en ég tók það að mér að velja mynd. Myndin Click með Adam Sandler varð fyrir valinu. Ég vissi svo sem að við áttum ekki von á neinu stórkostlegu en gerði að minnsta kosti ráð fyrir ágætis afþreyingu. Myndin var svo léleg að mig langaði að labba út á tímabili. Sjálf tel ég mig freka lata manneskju sem getur horft á hvað sem er í sjónvarpinu ef ekkert annað er í boði en guð hvað mér leiddist áðan! Ekki success.

Vona bara að allir séu í stuði - ég er það allavega8| Trúiði mér ekki!?!


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 10:29:19 / totasigur

lelegurbloggari.is

Vá hvað ég er löt að blogga. Samt alveg fullt að gera - og kannski er það einmitt þess vegna sem ég nenni ekki að blogga - hmmm...

Fjör


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 17:57:36 / totasigur

húrra húrra húrra!

Nú er ég næstum búin að læra danska afmælissönginn! Fór í enn eina afmælisveisluna hjá Bahnsens fjölskyldunni í gær en þá varð hann Niels frændi minn 49 ára. Síðasta vetur fór ég í að minnsta kosti fimm afmælisveislur og þá reyndi ég allavega að syngja með húrra húrra húrra sem kemur inn á milli en danski afmælissöngurinn er sko ekkert jafnaumingjalegur og sá íslenski heldur annað lag og örugglega fjögur erindi. Ég strandaði aðeins í miðjum söngnum en gat svo sungið aftur með í lokin - hlýt að ná þessu eftir þennan vetur :haha:

Fyrir helgi var þvílíkur metnaður í mér - ætlaði að vera geðveikt dugleg alla helgina í lærdómnum. Byrjaði mjög vel og var til hálfsex á föstudaginn - laugardagurinn var svona frekar slappur en sunnudagurinn gjörsamlega dauður :S Átti eftir að hreinskrifa síðasta hlutann í verkefninu mínu sem ég skilaði í morgun og geymdi það alveg þangað til ég kom heim eftir afmælið í gærkvöldi - ömurlegt! Fór því ekki að sofa fyrr en hálftvö í nótt og var eins og drusla í allan dag :|

Annars er indæla veðrið í Danmörku búið í bili og hér rignir og rignir og rignir og í gær voru mega þrumur og eldingar - byrjuðu einmitt þegar ég var að hjóla heim frá Niels8|


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 20:52:39 / totasigur

Á hjóli í sól og sumri

Já Hulda mín - þú getur bara haldið áfram að öfunda mig út af veðrinu! Hjólaði niður í bæ og snöflaði bara heilan helling ;) Flatmagaði í Rosenborghave í sólinni og er eldrauð á bringunni - 24. september athugið!!!

Olga og Kenni eru búin að vera í heimsókn þessa helgina og það er því búið að vera megafjör hérna hjá okkur. Ég er ekki alltaf alveg inni í planinu því að þau gista ásamt Gyðu hjá Guðlaugu og Svenna. Mér skildist sem sagt að í dag væri túristadagur og var náttúrlega vöknuð löngu fyrir hádegi og komin niður í bæ um hálfeitt. Þá tékkaði ég nú á þeim og þá voru víst allir sofandi enn nema Guðlaug - þau komu svo niður í bæ klukkan 17:00:!: Það vill nú hins vegar svo vel til að ég er gríðarlega sjálfri mér næg og hafði það bara svaka gott á röltinu og hjólandi um í góða veðrinu. Þegar ég sat svo á Kongens Nytorv að bíða eftir krökkunum rétt fyrir fimm sá ég stelpu að skoða myndasýninguna (svona eins og er á Austurvelli). Hún var alveg ótrúlega lík einni stelpu sem ég þekki og ég glápti hreinlega á hana meðan hún skoðaði myndirnar. Hún var í smá fjarlægð þannig að ég var ekki alveg viss um að þetta væri sú sem ég hélt. Svo þegar krakkarnir komu rak Guðlaug mig náttúrlega til að tékka á þessu og mér leið eins og algjörum laumuperra þegar ég nálgaðist stúlkugreyið. Og haldiði ekki bara að þetta hafi verið hún Tine danska sem ég var með í Göthe Institut í Berlín fyrir fimm árum síðan! Þvílík snilld að hitta hana bara þarna í bænum - er búin að velta oft fyrir mér hvort ég gæti ekki nálgast hana en einhvern veginn aldrei látið neitt verða af því en núna er ég sem sagt komin með símanúmerið hennar og við ætlum að hittast einhvern tíma og rifja upp gamla tíma - sjúklega gaman enda alveg frábær stelpa :D

Nú er kominn tími til að fara í bólið enda Geoteknik. Konstruktioner i jord klukkan 8:00 í fyrramálið.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 21:21:15 / totasigur

Skemaskipulag

Danir eru frábærir. Kalenderinn er besti vinurinn og skemaskipulagið verður að fá að halda sér. Í morgun fór ég í betonteknologi og fyrir tímann átti að lesa bls. 203-249 og eins og sannur Íslendingur las ég ekki heima - fannst ég góð að blaða þó aðeins í gegnum kaflann. Þegar svo í tímann var komið sagði kennarinn að hún hefði aðeins breytt og að það mætti sleppa bls. 210-212 en í staðinn lesa 392-394, þ.e. sleppa þremur blaðsíðum og lesa aðrar þrjár í staðinn. Þá tók einn danskur nemandi sig til og flippaði bara - honum var svo mikið niðri fyrir að hann gat með engu móti talað ensku heldur kvartaði sáran yfir þessari breytingu á dönskunni sinni og sagði kennaranum að hann þyrfti að fá að halda skemaskipulaginu og spurði vesalings kennarann hvenær í ósköpunum hann ætti nú að lesa þessa auka blaðsíður. Ég hefði boðið honum bréfpoka að anda í hefði ég haft svoleiðis með - alveg spurning um að fara að ganga með einn á sér á miðvikidögum - kennarinn varaði nefnilega við því að aðrar breytingar gætu komið fyrir. Ég er ekkert að grínast - drengurinn var hreinlega sármóðgaður 8|

Í kvöld elduðum við nýi Daníel þennan líka fína mat. Hann var að vísu pínu bragðlaus (Daníel sko :haha: ) en ekkert sem smávegis salt gat ekki bjargað :$ Við buðum upp á svínakjöt í sveppasósu með meiru og svo kom hann með þvílíka desertsbombu. Kökubotn er settur í eldfast mót og vanilluís hlaðið í fjall ofan á. Þar á eftir eru eggjahvítur þeyttar saman við sykur og því smurt vandlega utan um ísinn og sett í ofn í nokkrar mínútur - bomba :haha:

Á morgun er svo flugvallarferð að sækja Olgu og Kenna en þau eru að koma og spilla skemaskipulaginu okkar um helgina - hmmm... sé ekki fram á að koma mér upp svona skemaskipulagi upp í nánustu framtíð - eða bara yfir höfuð :lol:

Það verður sem sagt fjör um helgina og TDC á laugardaginn með eldhúskrökkunum!


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 16:01:36 / totasigur

23°C og sól í Køben

Á miðvikudagsmorgnum á ég að vera í Betonteknologi en þar sem kennarinn er í Kanada var frí í morgun. Lassi blessaður var ekki alveg með á nótunum og hringdi náttúrlega furðu lostinn yfir því að fyrirlestrasalurinn væri tómur - klukkan 8:10 í morgun! Mér tókst auðvitað ekki að sofna aftur - alveg pæling að hringja í Lassa einhverja nóttina bráðum:klikk:

Ég dreif mig nú bara í skólann í dag fyrir hádegi og prentaði út heilu tonnin af glósum og dröslaðist með heim. Svo er búin að fara í þvílíka verslunarferð með Majken í dag - fórum bæði í Nettó og Superbrugsen því að það var nefnilega tilboð á kjöti og kornflexi í Superbrugsen. Við byrjuðum reyndar á því að kaupa svo mikið í Nettó að við stálum bara innkaupakerrunni og keyrðum allt draslið heim. Það er hvort eð er svo mikið af þeim hérna fyrir utan að það munar ekki um eina í viðbót :lol:

Ég var eiginlega búin að ákveða að nota daginn í dag til að hjóla niður í bæ og dóla mér því að það er alveg mega veður hérna - 23 gráður og þurrt en samt ekki of heitt fyrir mig :haha: Mér fannst ég samt einhvern veginn ekki hafa tíma til þess því að ég þurfti aðeins að prenta og lesa og svoleiðis því að á morgun er vísindaferð til Flugleiða og þá verður ekkert lesið. Ég er að reyna að koma mér inn í danska mynstrið að lesa fyrir tímana - einhvern veginn á öllum mínum skólaferli hefur mér aldrei tekist að koma mér í þann gír. Maður getur svo sem alltaf reynt að gera betur en síðast en ég þekki mig svo sem það vel að ég veit að ég á ekki eftir að lesa fyrir marga tímana þetta misserið :$

Í kvöld er svo fyrsti matarklúbbur eldhússins á nýju misseri og erum við 11 meðlimir - og ég sem nenni ekki einu sinni að elda ofan í mig eina!

Bless.


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 10:51:31 / totasigur

Køben - Pøben

Aftur komin til Danmerkur og gleðin tekin við. Mikkel byrjaði náttúrlega á því í morgun að setja út á hafragrautinn minn - honum fannst alveg hrikalegt af mér að setja rúsínur út á hann og þegar ég bætti mjólkinni við átti hann hreinlega ekki til eitt einasta orð. Ég benti honum nú "pent" á að smjörið sem hann setur út á sinn graut finnist mér bara alveg ótrúlega ógeðslegt! Afskiptasemin í honum hefur greinilega ekkert breyst í sumar - sem er bara gaman.

Majken (aðdáandinn handan við ganginn) er líka söm við sig - eldaði handa mér á sunnudagaskvöldið þessi elska og fannst alveg tilvalið að þvo af rúminu sínu um leið og ég - svo gaman að henni.

Skólinn er byrjaður og ég búin að fara í einn tíma og er að fara í annan á eftir. Er ekki alveg búin að ákveða hvaða kúrsa ég tek svo að þetta verður mega-prufu-vika og eftir hana ætla ég að vera búin að ákveða mig alveg. Kíkti náttúrlega aðeins í H&M félaga minn í gær og keypti mér þrjá boli, leggings og regnhlíf :haha:

Í kvöld er svo køkkenmøde og þá bjóða nýir meðlimir eldhússins upp á bjór - þeir eru sex talsins að þessu sinni svo að kvöldið gæti endað í djammi í kjallaranum 8|

Það er hins vegar greinilegt að Tótan er flutt úr einu litlu samfélagi (á austurlandi Íslands) í annað (í eldhús á þriðjuhæð blokkar í norðurhluta Kaupmannahafnar):!:


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.08.2006 11:35:44 / totasigur

Sunnudagur á Site

Sitjum tvö á skrifstofunni á svæðinu - ég og gaur sem er algjör vinnualki! Bechtel vinnur næstum aldrei á sunnudögum og sérstaklega ekki núna um verslunarmannahelgina og því er heldur rólegt hér. Ég nota þá bara tímann til að undirbúa kynningu sem við sumarstarfsmennirnir eigum að halda fyrir toppana hérna 8| Við eigum að segja frá því hvað við séum búin að vera að gera í sumar og hvort við lærðum eitthvað á því og svoleiðis blabla. Ég hef náttúrlega ekkert nema bara gott um þetta að segja og að ég sé mjög ánægð - bara pínu stressuð yfir því að þeir fari eitthvað að taka mann á taugum með yfirheyrslum :( Maður verður þá bara eins og aumingi í nokkrar mínútur og svo er það þá búið.

Fórum í gær á Neskaupsstað á Neistaflug og strákarnir vildu endilega fara snemma og við vorum mætt þangað um hálfátta! Bærinn var náttúrlega galtómur fyrir utan nokkra krakka á þvælingi. Þegar leið á kvöldið fór svo aðeins að bætast við fólk og meðal annars mætti yfirmaður minn - sem er 28 ára - frekar vel í því og þurfti náttúrlega að ræða alvarlega við mig og eyddi mörgum mínútum í það eitt að segja hvað hann væri ánægður með mig. Það er svo sem ekkert leiðinlegt að heyra það en þegar maðurinn var kominn í svona fjóra hringi var þetta komið gott ;) Sérstaklega vegna þess að ég var bílstjóri og ekki búin að fá mér eina einustu áfengiseiningu!

Annars er veðrið bara nokkuð gott í dag en undanfarið hefur þokan verið að gera mig gjörsamlega brjálaða. Það er því pæling að smella sér dálítið út í dag og labba um svæðið - þvílíkt sem það breytist dag frá degi.

Tótan kveður í bili 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5